LifePass
PakkarSkoðaFyrir aðstöðuFyrir fyrirtækiUm okkur
IS / ENInnskráning
Ein áskrift
Allir staðir
Uppgötva
  • Staðir
  • Áskriftir
  • Lónin
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Leit
  • Um okkur
  • iOS app
Fyrir samstarfsaðila
  • Fyrir staði
  • Fyrir fyrirtæki
  • Hafa samband
Aðstoð
  • Spurt og svarað
  • Störf
  • Hafa samband
Lagalegt
  • Skilmálar
  • Persónuvernd
VISA
© 2026 Sporta ehf · kt. 490925-1470 · VSK 161242 · Hverfisgata 88, 101 Reykjavík · support@lifepass.is
EN/IS·INSTAGRAMLINKEDIN

Líkamsræktarstyrkur

Nýttu líkamsræktarstyrkinn þinn í LifePass

Flest stéttarfélög á Íslandi endurgreiða félagsfólki hluta af kostnaði við líkamsrækt og heilsueflingu. Með LifePass nýtir þú styrkinn í einn passa sem opnar tugi staða um allt land — líkamsræktarstöðvar, lón, sánur, sund og jógastöðvar — í stað þess að binda þig við eina stöð.

Skoða áskriftarleiðirSjá alla staði

Svona virkar það

01

Veldu áskrift

Áskriftarleiðir frá 8.900 kr. á mánuði. Engin binding við eina stöð — þú getur breytt eða sagt upp áskriftinni hvenær sem er.

02

Fáðu kvittunina

Kvittun er send sjálfkrafa í tölvupóstinn þinn við hverja greiðslu, með hlekk á sjálfa greiðslukvittunina.

03

Sendu til stéttarfélagsins

Skilaðu kvittuninni inn í styrkjakerfi félagsins þíns — hjá mörgum félögum í gegnum Frímann — og fáðu endurgreiðslu samkvæmt reglum þess.

Hvað er líkamsræktarstyrkur?

Líkamsræktarstyrkur (oft kallaður heilsustyrkur eða íþróttastyrkur) er réttur sem langflest stéttarfélög veita félagsfólki sínu: endurgreiðsla á hluta af kostnaði við líkamsrækt, sund, jóga og aðra heilsueflingu. Upphæðir og reglur eru mismunandi eftir félögum — hjá flestum þarf einfaldlega að skila inn kvittun. Kannaðu rétt þinn á vef þíns félags eða í Frímanni, orlofs- og styrkjakerfinu sem fjöldi stéttarfélaga notar.

Styrkjasíður helstu stéttarfélaga:

  • Efling →
  • VR →
  • Sameyki →
  • Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga →
  • Framsýn →

LifePass í Frímanni

LifePass er nú hluti af Frímanni, stærsta orlofs- og styrkjakerfi landsins. Ef stéttarfélagið þitt notar Frímann finnur þú LifePass á þjónustusíðu félagsins þíns. Sama hvaða leið þú velur — styrkurinn þinn gildir.

Ertu með kóða frá Frímanni?

Ef þú fékkst aðgangskóða í gegnum stéttarfélagið þitt virkjar þú hann hér og passinn þinn er tilbúinn strax.

Einn passi. Allt landið.

Tugir staða um allt land: World Class, lón og baðstaðir, sánur, sundlaugar og jógastöðvar. Þú skannar QR-kóða við innganginn — engin kort, engin binding.

Algengar spurningar

Get ég notað líkamsræktarstyrkinn minn í LifePass?

Já. LifePass-áskrift telst kostnaður við líkamsrækt og heilsueflingu og flest stéttarfélög endurgreiða hana samkvæmt sínum reglum. Kannaðu upphæð og skilyrði hjá þínu félagi.

Hvernig fæ ég kvittun fyrir stéttarfélagið?

Kvittun er send sjálfkrafa í tölvupóstinn þinn við hverja greiðslu, með hlekk á sjálfa greiðslukvittunina sem þú getur skilað inn til félagsins.

Hversu hár er styrkurinn?

Það fer eftir stéttarfélagi — upphæðir eru breytilegar og geta breyst milli ára. Réttar upplýsingar eru á vef félagsins þíns.

Þarf ég að greiða skatt af styrknum?

Um skattfrelsi heilsustyrkja gilda reglur Skattsins. Kynntu þér gildandi viðmið á skatturinn.is.

Gildir LifePass um allt land?

Já — staðir eru um allt land og fleiri bætast við. Sjá yfirlit á staðasíðunni.

Virkja kóða
Sjá alla staði