LifePass
PakkarSkoðaFyrir aðstöðuFyrir fyrirtækiUm okkur
IS / ENInnskráning
Ein áskrift
Allir staðir
Uppgötva
  • Staðir
  • Áskriftir
  • Leit
  • Um okkur
  • iOS app
Fyrir samstarfsaðila
  • Fyrir staði
  • Fyrir fyrirtæki
  • Hafa samband
Aðstoð
  • Spurt og svarað
  • Störf
  • Hafa samband
Löglegt
  • Skilmálar
  • Persónuvernd
© 2026 Sporta ehf · Hverfisgata 88, 101 Reykjavík
EN/IS·INSTAGRAMLINKEDIN

Nº 02 — Saga okkar

Við erum LifePass

Viðskiptablaðið →Morgunblaðið →

Lestu meira um okkur

LifePass Iceland er nýr íslenskur vettvangur sem sameinar líkamsrækt, jóga, pilates, heilsulindir og fjölbreytta þjónustu í vellíðan inn á eitt miðlægt áskriftarkort. Með sveigjanlegu inneignarkerfi geta notendur valið það sem hentar hverju sinni, prófað nýja staði og notið þess besta sem íslenskt heilsu- og vellíðunumhverfi hefur upp á að bjóða - án þess að vera bundnir við eina stöð.

Ísland er í heimsklassa þegar það kemur að heilsu og vellíðan, en Íslendingar og ferðamenn vita oft ekki af því frábæra úrvali sem er í boði hér á landi. LifePass Iceland vill einfalda fólki aðgengi að þessum staðsetningum og um leið styðja þjónustuaðila með auknum sýnileika og nýjum notendum. Þetta er fyrsta skrefið í að byggja upp samfélag þar sem sveigjanleiki, heilsa og vellíðan vinna saman.

Að LifePass Iceland standa fjórir aðilar með ólíkan bakgrunn en sameiginlega ástríðu: Valerie Christine og Lucas Bures-Bönström, sem fluttu til Íslands frá Þýskalandi og hafa starfað lengi í heilsu- og íþróttageiranum, Victor Guðmundsson læknir og Elvar Páll Sigurðsson markaðssérfræðingur og fyrrverandi knattspyrnumaður. Saman deila þau einni sýn: að gera hreyfingu aðgengilegri, fjölbreyttari og ánægjulegri fyrir alla.

LifePass er vettvangur sem einfaldar líf notenda, styður íslenska þjónustuaðila og hvetur til sterkari heilsumenningar. Við viljum að fólk geti valið hreyfingu eftir því hvernig dagurinn þróast - og prófað eitthvað nýtt þegar það langar. Þetta er sveigjanleiki, vellíðan og heilsa á einum stað.

Gildin okkar

Einfaldleiki

Tengdu þig við það besta á Íslandi þegar kemur að hreyfingu og vellíðan með einföldum hætti

Heilsa og vellíðan

Heilsa og vellíðan skiptir okkur miklu máli, en það er grunnurinn að góðu lífi

Sveigjanleiki

Þú getur sinnt heilsu og vellíðan hvar sem er og hvenær sem er

Aðgengi

Við tengjum þig við bestu staðina um allt land

Ertu tilbúin/n að byrja upplifunina?

Byrja núnaSkoða samstarfsaðila