Black Friday-tilboð

Út mánudaginn 30. nóvember erum við með tvö tilboð. Forskot á nýja árið er fyrir þig sem vilt gerast áskrifandi fyrir áramót. Gestapassarnir Explorer og Adventurer eru með 20% afslætti og henta vel í jólagjöf. Hér fyrir neðan eru öll verðin, með fyrra verði og afslætti.

Forskot á nýja árið

3.000 kr. afsláttur á mánuði af Base eða Plus, fyrstu tvo mánuðina.

Fyrir alla sem eru ekki með áskrift í dag, líka þá sem hafa prófað LifePass áður eða verið áskrifendur. Þú þarft rafræn skilríki, eins og fyrir allar áskriftir.

Þú velur Base eða Plus og greiðir 3.000 kr. minna á mánuði fyrstu tvo mánuðina, 6.000 kr. minna samtals. Síðan greiðir þú venjulegt verð. Áskriftin endurnýjast mánaðarlega, það er engin binding og þú getur sagt upp hvenær sem er.

Verð á mánuði
PakkiFyrra verðFyrstu tvo mánuðinaAfslátturEftir það
Base8.900 kr.5.900 kr.33%8.900 kr.
Plus14.900 kr.11.900 kr.20%14.900 kr.

Þú sparar 6.000 kr. samtals, á Base eða Plus.

Gildir um nýjar áskriftir að Base eða Plus sem keyptar eru frá föstudeginum 20. nóvember til kl. 23:59 mánudaginn 30. nóvember. Afsláttarkóðinn FORSKOT26 er settur inn sjálfkrafa þegar þú ýtir á hnappinn. Max er ekki hluti af tilboðinu.

Tilboðsverðið gildir um fyrstu tvær mánaðargreiðslurnar, á kaupdaginn og mánuði síðar. Frá og með þriðju greiðslu, tveimur mánuðum eftir kaupdaginn (20. til 30. janúar, eftir því hvaða dag þú kaupir), greiðir þú venjulegt verð: 8.900 kr. á mánuði fyrir Base og 14.900 kr. fyrir Plus.

Áskriftin endurnýjast mánaðarlega þar til þú segir upp. Engin binding: þú getur sagt upp hvenær sem er í aðganginum þínum og uppsögnin tekur gildi í lok greidds mánaðar.

Með kóðanum hefst áskriftin á kaupdaginn og fyrsta greiðslan er tekin um leið. Prufutíminn fylgir ekki. Ekki er hægt að nota kóðann með öðrum afsláttarkóða, til dæmis frá stéttarfélagi.

Fyrir þá sem eru ekki með áskrift í dag. Krefst rafrænna skilríkja. Einu sinni á mann, fyrir fyrstu 100 kaupendur.

Þú getur fallið frá kaupunum innan 14 daga með því að senda okkur tölvupóst á support@lifepass.is. Þá endurgreiðum við þér það sem þú greiddir, að frádregnum hlut þeirra daga sem áskriftin var virk (sjá grein 6.4 í skilmálum).

Fyrra verð er verðið sem gilti til og með 19. nóvember.

Gestapassar í jólagjöf

20% afsláttur af Explorer og Adventurer, fyrir þig eða til að gefa.

Fyrir alla sem vilja gefa hreyfingu í jólagjöf og alla sem vilja stakar heimsóknir án áskriftar. Það þarf hvorki áskrift né rafræn skilríki.

Sömu heimsóknir og sami gildistími, með 20% afslætti. Explorer og Adventurer gilda í líkamsræktarstöðvum, stúdíóum og sundlaugum LifePass um allt land, en ekki í boutique-stúdíóum. Þegar þú gefur passa fær viðtakandinn hann í tölvupósti um leið og þú kaupir. Viðtakandinn hefur 6 mánuði til að sækja passann og gildistíminn byrjar daginn sem hann er sóttur, svo gjöfin getur beðið fram yfir áramót.

PassiHeimsóknirGildistímiFyrra verðTilboðsverðAfsláttur
Explorer330 dagar7.900 kr.6.320 kr.20%
Adventurer660 dagar14.900 kr.11.920 kr.20%

Gildir um gestapassana Explorer og Adventurer sem keyptir eru til kl. 23:59 mánudaginn 30. nóvember, fyrir þig eða sem gjöf. Kóðinn BLACKFRIDAY er settur inn sjálfkrafa þegar þú ýtir á hnappinn og þú getur líka slegið hann inn við greiðslu. Hann gildir ekki með öðrum afslætti, til dæmis frá samstarfsaðila.

Afslátturinn er af verði passans. Heimsóknir og gildistími eru óbreytt og álag á premium-stöðum lækkar ekki. Local-passinn, Rækt dagspassi og Lagoon Duo eru ekki hluti af tilboðinu.

Gjöf er send viðtakanda í tölvupósti um leið og þú kaupir hana. Ekki er hægt að velja annan dag fyrir sendinguna. Viðtakandinn sækir gjöfina með sama netfangi innan 6 mánaða og gildistími passans byrjar daginn sem hann er sóttur. Gjöf sem er ekki sótt innan 6 mánaða frá kaupum fellur úr gildi.

Ef passinn er ónotaður eða gjöfin hefur ekki verið sótt getur þú fallið frá kaupunum innan 14 daga og fengið fulla endurgreiðslu. Sendu okkur þá tölvupóst á support@lifepass.is (sjá greinar 4.7 og 6.4 í skilmálum).

Fyrra verð er verðið sem gilti til og með 22. nóvember.

Fyrir fyrirtæki: passar í jólagjöf handa starfsfólkinu. Hafðu samband og við sendum þér verðskrá.

Nýtt hjá LifePass

Viltu ekki fara í áskrift?

Local 30: 30 heimsóknir sem gilda í 365 daga.

Local 30 er klippikort með 30 heimsóknum. Þú greiðir einu sinni og notar heimsóknirnar þegar þér hentar, í líkamsræktarstöðvum, stúdíóum og sundlaugum um allt land. Hver heimsókn er eitt skipti í líkamsræktarstöð, í tíma í stúdíói eða í sundi. Hún dregst af kortinu þegar þú skannar þig inn með appinu eða staðurinn skráir mætingu þína. Bókaður tími sem þú afbókar ekki í tæka tíð, eða mætir ekki í, telst líka heimsókn.

Þú getur farið einu sinni á dag í líkamsræktarstöð eða stúdíó og einu sinni á dag í sund, en ekki tvisvar á sama stað sama daginn. Þú getur verið með mest 2 bókanir í einu. Boutique-stúdíó, lón og aðrir premium-staðir eru ekki innifalin. Í appinu sérð þú hvað er í boði á hverjum stað, til dæmis hvort hóptímar fylgja.

Fyrir alla, líka þá sem eru í áskrift eða prufutíma hjá LifePass. Eitt kort á mann. Þú skráir þig inn til að kaupa, en þarft ekki rafræn skilríki.

71.900 kr. í einni greiðslu

Um 2.400 kr. á heimsókn ef þú nýtir allar 30.

Local 30 kostar 71.900 kr. með virðisaukaskatti. Þú greiðir einu sinni og kortið endurnýjast ekki.

Kortið virkjast strax eftir greiðslu og gildir í 365 daga frá kaupdegi. Síðasti dagurinn sem kortið gildir kemur fram áður en þú greiðir og á kvittuninni. Ónotaðar heimsóknir falla niður þegar kortið rennur út.

Ef þú ert líka með áskrift notar þú áskriftina þegar hún nær yfir heimsóknina, en annars kortið, til dæmis þegar þú hefur notað allar heimsóknir mánaðarins. Þú notar aldrei bæði áskriftina og kortið fyrir sömu heimsókn og 365 daga gildistími kortsins heldur áfram að líða.

Ekki er hægt að kaupa Local 30 sem gjöf eða nota afsláttarkóða við kaupin.

Staðir geta bæst við eða hætt hjá LifePass á gildistímanum. Ef staður hættir getur þú óskað eftir endurgreiðslu á ónotuðum heimsóknum.

Þú getur fallið frá kaupunum innan 14 daga frá kaupdegi (sjá grein 6.4 í skilmálum). Ef þú hefur notað heimsóknir dregst 1/30 af verðinu frá fyrir hverja þeirra.